Loksins kemur blogg.
Það er búið að vera ágætlega mikið að gera í skólanum, verkefnaskil og próf og þannig stússerí þannig bloggsíðurnar hafa legið niðri og kannski útaf einhverju öðru.
Nú er búið að vera heví snjór og ég og Óli búnir að vera á vélsleða. Fórum á Hafravatn á miðvikudaginn og það var helvíti gaman, tókum video sem er í bloggi fyrir neðan. En sjeikur að ná ekki vídjói þegar við fórum uppí 150 km/klst og þegar óli velti soldið illa.
Svo í gær keyrðum við á sleðanum upp í Skálafell á þjóðveginum, en hann var alveg ófær og djúpur snjór á honum. Þegar við vorum á leið upp fjallið versnaði og versnaði veðrið og ákváðum við að snúa við þegar við hættum að sjá meter fyrir framan okkur og gulu staurarnir við veginn hættu að sjást. Við vorum komnir ágætlega langt upp fjallið og ég hélt um tíma að við myndum þurfa að hringja eftir hjálp því þetta er skuggalegasta veður sem við höfum lent í.
En langaði bara að henda inn smá bloggi til að ,,fresha" síðuna aðeins.
Menn eru að tala um að Cascada sé málið.. spurning
Verðum að fara að gera eitthvað svo strákar, við erum alveg hættir að hittast allir saman. Gerum eitthvað gott úr því.
haha litríkt
-Maggi